Sörur eru vinsælar á aðventunni, þegar smákökur eru bakaðar af miklum móð á mörgum íslenskum heimilum.
Þau sem hafa valið sér vegan lífsstíl, eða hafa ofnæmi fyrir eggjum, borða þó ekki klassískar sörur.
Okkur
langaði að spreyta okkur á því að baka eggjalausar kökur sem væru
innblásnar af sörum. Eftir smá tilraunastarfssemi fæddist þessi
uppskrift og kökurnar eru svaaakalega góðar.
Kökurnar
eru eins og áður sagði innblásnar af sörum, en bragðast auðvitað ekki
nákvæmlega eins, enda annað hráefni notað. Tilfinningin er samt mjög
góð... ...að finna þunnan súkkulaðihjúpinn brotna undan tönnunum, sökkva
svo í dásamlegt kaffikrem og enda í mjúkum og pínu karamellukenndum
möndlubotni. Fullkomnun!
Lesa meira