Eplasalat
- Auðvelt
- Vegan: Já
- Hráfæði: Já
Uppskrift
- Eplasalat
- 2 lífræn epli, kjarnhreinsuð
- 3 sellerístönglar, skornir í litla þunna bita
- 3 grænkálsblöð, rifin í bita og steikt á pönnu
- 10 lífrænar þurrkaðar aprikósur, smátt saxaðar
- 2 msk granateplakjarnar
- 10 pekanhnetur
- Dressingin:
- 3 dl kasjúhnetur, lagðar í bleyti í 2 klst
- 2 dl vatn
- 2 – 3 msk ólífuolía eða önnur góð olía
- 2 msk sítrónusafi
- 1 msk sinnep
- 1 lítið hvítlauksrif
- 1 tsk laukduft
- 1 tsk salt
- 2 – 3 döðlur
Setjið allt hráefnið fyrir dressinguna í blandara og blandað vel saman, kannski þarf að bæta smá meira vatni út í ef blandarinn á í erfiðleikum.
Skerið grænmetið og eplin í bita og setjið í skál, hellið dressingunni yfir, blandið öllu vel saman. Endið á að strá granateplakjörnum og pekanhnetum yfir salatið.
- Næsta færsla
- Fyrri færsla